Skipið til sýnis fyrir almenning

Hið nýja og stórglæsilega varðskip Landhelgisgæslunnar, Þór, kom til Reykjavíkurhafnar í fyrsta sinn þann 27. október 2011. Því var siglt frá skipasmíðastöð í Chile og tók ferðin um einn mánuð, með dags viðkomu í Vestmannaeyjum daginn áður. Ég leit við til að skoða skipið og tók upp nokkur myndskot sem sýna skipið að utan og innan. Óundirbúið og óháð. Þetta er vonandi þeim til ánægju sem komast ekki til að skoða skipið.

 Myndskeiðið er tekið á afar einfalda digital vasamyndavél af minnstu gerð, sem ég var með í vasanum. Það er Olympus T-100, sem þrátt fyrir allt tekur þó nokkuð góðar myndir. Þegar þetta er ritað (28. október) kostar svona vél 9.900 krónur á sértilboði (já innan við 10 þúsund kall) í Reykjavík. Ótrúlegt að hægt sé að ná þessu myndskeiði út úr þeirri vél! (Ath engin tengsl hér við myndavélaframleiðandann eða verslanir).

Myndskeiðið var svo klippt, og hljóð og mynd lagfærð, í Sony Vegas Movie Studio HD 11 klippiforritinu.



Yfirlit:

  • Gert: Október 2011.
  • Einkenni: Fremur einfalt myndskeið án tals, en tónlist sett undir.
  • Dreifing: Á þessum vef og Youtube.
  • Tæki og tól: Sjá neðst.

Græjur og aðföng:

Olympus T-100 digital vasamyndavél.
Sony Vegas Movie Studio 11 HD klippiforrit.
Royalty free tónlist frá Evobeats.

 


Grípandi - myndskeið og markaðssetning | Sími 773 7100 | Tölvupóstur gripandi@gripandi.is | © 2010 Sverrir Sv. Sigurðarson - öll réttindi áskilin